Áskell erkibiskup
Áskell (um 1100 – 1181/82) var erkibiskup í Lundi af jósku ættinni Thrugot sem kepptu við ættina Hvide um völd í Danmörku. Áskell var sendur til náms í Hildesheim á Saxlandi. Við heimkomuna var hann gerður dómprófastur við kirkjuna í Lundi, þar sem Össur, föðurbróðir hans, var erkibiskup. Eftir orrustuna við Fótavík þegar Eiríkur eimuni varð konungur, var hann gerður að biskup í Hróarskeldu. Honum lenti þó brátt saman við konung og tók þátt í uppreisn gegn honum, sem endaði með ósigri þar sem Áskeli var gert að greiða sekt.
![](http://up.wiki.x.io/wikipedia/commons/thumb/6/6c/%C3%85hus_%C3%86rkebiskop_Eskils_borg1.jpg/220px-%C3%85hus_%C3%86rkebiskop_Eskils_borg1.jpg)
Áskell tók við embætti erkibiskups Norðurlanda eftir lát Össurs 1137. Hann er sagður hafa vígt dómkirkjuna í Lundi árið 1145. Hann sagði af sér embætti 1177 og Absalon tók við.
Fyrirrennari: Össur |
|
Eftirmaður: Absalon |