Úralfjöll
Úralfjöll (rússneska Ура́льские го́ры, Úralskíje gory) eru 2500 km langur fjallgarður sem liggur nokkurn veginn í norður-suður eftir miðvesturhluta Rússlands. Þau ná frá sléttunum í Kasakstan meðfram norðurlandamærum landsins að Norður-Íshafinu í norðri. Landfræðilega skipta fjöllin evrasíska meginlandinu milli Evrópu og Asíu. Hæsta fjallið er Narodnaja (1895 m hátt). Þar hafa Rússar lengi urðað kjarnorkuúrgang sinn.
![](http://up.wiki.x.io/wikipedia/commons/2/20/UralMountains1.png)
Novaja Zemlja-eyjaklasinn er talinn vera framhald af Úralfjöllum.
Tenglar
breytaWikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Úralfjöllum.