Austfirðir
Austfirðir er samheiti fjarða á vogskorinni austurströnd Íslands. Austfirðir eru taldir frá Glettingi að Eystrahorni: Húsavík, Loðmundarfjörður, Seyðisfjörður, Mjóifjörður, Norðfjörður, Hellisfjörður, Viðfjörður, Sandvík, Vöðlavík, Eskifjörður (sem gengur inn úr Reyðarfirði), Reyðarfjörður, Fáskrúðsfjörður, Stöðvarfjörður, Breiðdalsvík, Berufjörður, Hamarsfjörður, Álftafjörður. Austasti tangi Austfjarða er Gerpir og er hann á milli Sandvíkur og Vöðlavíkur. Í Sandvík var austasta byggð á Íslandi fram á 20. öld.
![](http://up.wiki.x.io/wikipedia/commons/thumb/c/ce/Flag_of_Iceland.svg/40px-Flag_of_Iceland.svg.png)