EDHEC Business School

EDHEC Business School er evrópskur verslunarskóli með skólalóðir í París, London, Lille, Nice og Singapúr. Hann er stofnaður 1906[1]. EDHEC var í 25. sæti meðal evrópskra verslunarskóla árið 2015 samkvæmt The Finanical Times[2]. Árið 20105, var meistaranám hans í stjórnun (Master in Management program) í 18. sæti á heimsvísu skv. The Financial Times[3]. Hann er einnig í 84. sæti á heimsvísu fyrir MBA nám hans á Framkvæmdasviði[4]. EDHEC býður einnig upp á doktorsnám (PhD nám), sem og ýmis meistaranám (Master programmes) í sérhæfðum stjórnsviðum, svo sem: markaðssetningu, fjármálasvið, eða frumkvöðlastarfsemi. Nám hans eru þrí-faggild af hinum alþjóðlegu samtökum AMBA, EQUIS, and AACSB (evrópskar og norður amerískar faggildingarnefndir (samtök) fyrir MBA gráður)[5]. Skólinn á yfir 30 000 hollvini (alumni) í verslun og stjórnmálum, svo sem: Delphine Arnault (Deputy CEO Louis Vuitton) og Jean-Jacques Goldman (Söngvari).

Tilvísanir

breyta
  1. „Business school: l'Edhec monte en grade“. Afrit af upprunalegu geymt þann 22. september 2016. Sótt 3 maí 2016.
  2. „European Business School Rankings 2015“. Afrit af upprunalegu geymt þann 4 maí 2016. Sótt 3 maí 2016.
  3. „Masters in Management 2015“. Afrit af upprunalegu geymt þann 16 október 2015. Sótt 3 maí 2016.
  4. „Global MBA Ranking 2016“. Afrit af upprunalegu geymt þann 11 október 2018. Sótt 3 maí 2016.
  5. Triple accredited business schools (AACSB, AMBA, EQUIS)

Ytri tenglar

breyta