Edda (hús íslenskunnar)

Edda (áður kallað „Hús íslenskunnar“ og „Hús íslenskra fræða“) er menntastofnun við Arngrímsgötu í Reykjavík. Þar er miðstöð rannsókna og kennslu í íslenskum fræðum; tungu, bókmenntum og sögu. Einnig eru staðsett þar handrit og ritsöfn Árnastofnunar.

Edda.

Byggingin sem var ákveðið að byggja árið 2005 er 6500 fermetrar. [1] Katrín Jakobsdóttir, þáverandi menntamálaráðherra tók fyrstu skóflustunguna árið 2013. Verkið dróst í nokkurn tíma og var uppnefnt „hola íslenskra fræða“ þegar gröfturinn fyrir húsgrunninum stóð opinn.[2]

Húsið var opnað almenningi á sumardaginn fyrsta 2023 og hlaut nafn sitt daginn áður.[3]

Tilvísanir

breyta