Fötlun
Fötlun er varanlegt líkamlegt eða andlegt ástand einstaklings, sem veldur því að hann getur ekki beitt sér til fulls. Dæmi um fötlun: Blinda, lesblinda, heyrnarleysi, geðklofi og þunglyndi. Hreyfihömlun er tegund fötlunar, sem stafar af lömun eða vansköpun á hluta líkamans, en sumir hreyfihamlaðir nota hjólastóla til að fara styttri vegalengdir.
![](http://up.wiki.x.io/wikipedia/commons/thumb/e/eb/Handicapped_Accessible_sign.svg/220px-Handicapped_Accessible_sign.svg.png)
Tengill
breytaWikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Category:Disabled people.
Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu Fötlun.