Handknattleiksárið 1983-84
Handknattleiksárið 1983-84 var keppnistímabilið í íslenskum handknattleik sem hófst haustið 1983 og lauk vorið 1984. Víkingar urðu Íslandsmeistarar í karlaflokki og Framstúlkur í kvennaflokki. Karlalandsliðið tók ekki þátt í stórmóti á keppnistímabilinu.
Karlaflokkur
breyta1. deild
breytaFH-ingar urðu Íslandsmeistarar í meistaraflokki karla. Keppt var í átta liða deild með tvöfaldri umferð. Því næst fóru fjögur efstu liðin í úrslitakeppni um Íslandsmeistaratitilinn þar sem leikin var fjórföld umferð og hófu öll liðin keppni án stiga. Fjögur neðstu liðin fóru í sérstaka keppni um fall með fjórfaldri umferð, en þau tóku með sér stigin sín úr aðalkeppninni.
Félag | Stig |
---|---|
FH | 26 |
Valur | 19 |
Víkingur | 16 |
Stjarnan | 15 |
KR | 14 |
Þróttur | 13 |
Haukar | 5 |
KA | 2 |
Úrslitakeppni 1. deildar
breytaFélag | Stig |
---|---|
FH | 22 |
Víkingur | 11 |
Valur | 10 |
Stjarnan | 5 |
Úrslitakeppni um fall
breytaFélag | Stig |
---|---|
Þróttur | 33 |
KR | 30 |
Haukar | 14 |
KA | 4 |
- KA og Haukar féllu í 2. deild.
2. deild
breytaÞór Vestmannaeyjum sigraði í 2. deild og fór upp um deild ásamt Breiðabliki. Keppt var í átta liða deild með tvöfaldri umferð. Að því loknu skiptist deildin upp í efri hluta og neðri hluta, þar sem fjögur efstu liðin léku tvöfalda umferð um sæti í 1. deild og fjögur neðstu um fall í 3. deild. Tóku liðin með sér stigin úr forkeppninni.
Úrslitaleikir um 1. deildar sæti
Félag | Stig |
---|---|
Þór Ve. | 44 |
Breiðablik | 34 |
Grótta | 29 |
Fram | 25 |
Úrslitakeppni um fall
Félag | Stig |
---|---|
HK | 29 |
Fylkir | 20 |
ÍR | 16 |
Reynir S. | 11 |
ÍR og Reynir Sandgerði féllu í 3. deild.
3. deild
breytaÁrmenningar sigruðu í 3. deild og færðust upp í 2. deild ásamt Þór frá Akureyri. Keppt var í níu liða deild með tvöfaldri umferð. Fjögur efstu liðin fóru í úrslitakeppni með tvöfaldri umferð og tóku þau með sér stigin úr forkeppninni.
Félag | Stig |
---|---|
Ármann | 26 |
Týr Ve. | 25 |
ÍA | 24 |
Þór Ak. | 23 |
Afturelding | 22 |
ÍBK | 12 |
Selfoss | 8 |
Skallagrímur | 4 |
Ögri | 0 |
Úrslitakeppni um sæti í 2. deild
- Úrslitakeppnin fór fram á tveimur helgum, á Akureyri og á Akranesi.
Félag | Stig |
---|---|
Ármann | 36 |
Þór Ak. | 31 |
Týr Ve. | 29 |
ÍA | 26 |
Bikarkeppni HSÍ
breytaVíkingar sigruðu í bikarkeppninni eftir úrslitaleik gegn Störnunni.
1. umferð
- Selfoss - Þór Ve. 18:33
...
16-liða úrslit
- Þór Ve. – FH 22:30
- Breiðablik – KR
- ÍBK – KA 22:27
- Afturelding – Grótta
- Haukar – Valur
- HK / Fram – Stjarnan
- Reynir S. – Þróttur
- ÍA – Víkingur
8-liða úrslit
Undanúrslit
Úrslitaleikur
- Víkingur - Stjarnan 24:21
Evrópukeppni
breytaEvrópukeppni meistaraliða
breytaVíkingar kepptu í Evrópukeppni meistaraliða og féllu út í 1. umferð á færri mörkum skoruðum á útivelli.
1. umferð
- Kolbotn, Noregi - Víkingur 20:18
- Víkingur - Kolbotn 21:19
Evrópukeppni bikarhafa
breytaKR-ingar kepptu í Evrópukeppni bikarhafa og féllu út í 8-liða úrslitum.
1. umferð
- KR sat hjá
16-liða úrslit
- KR - HC Berchem, Lúxemborg 17:12
- HC Berchem - KR 19:31
8-liða úrslit
- Maccaby Rishon El Zion, Ísrael - KR 19:16
- KR - Maccaby Rishon El Zion 16:14
Evrópukeppni félagsliða
breytaFH-ingar kepptu í Evrópukeppni félagsliða, IHF-bikarnum og féllu út í 8-liða úrslitum.
1. umferð
- FH sat hjá
16-liða úrslit
- Maccabi Tel Aviv, Ísrael - FH
- FH - Maccabi Tel Aviv 44:16
8-liða úrslit
- Tatabanya, Ungverjalandi - FH 35:27
- FH - Tatabanya 19:20
Kvennaflokkur
breyta1. deild
breytaFramarar urðu Íslandsmeistarar í meistaraflokki kvenna. Keppt var í átta liða deild með tvöfaldri umferð.
Félag | Stig |
---|---|
Fram | 26 |
FH | 23 |
ÍR | 22 |
Valur | 12 |
ÍA | 9 |
KR | 7 |
Fylkir | 7 |
Víkingur | 6 |
Víkingur og Fylkir féllu niður um deild. Fylkir og KR höfðu jafn mörg stig en KR-ingar hagstæðara markahlutfall í innbyrðisleikjum.
2. deild
breytaÞór Ak. sigraði í 2. deild og fór upp ásamt ÍBV, en liðin höfðu nokkra yfirburði í keppni vetrarins. Önnur keppnislið voru Haukar, Þróttur, HK, ÍBK, Stjarnan og Selfoss
Bikarkeppni HSÍ
breytaFramstúlkur sigruðu í bikarkeppninni eftir úrslitaleik gegn ÍR.
8-liða úrslit
Undanúrslit
Úrslit
- Fram - ÍR 25:20
Evrópukeppni
breytaEkkert íslenskt kvennalið tók þátt í Evrópukeppni þetta árið.
Landslið
breytaKarlalandsliðið bjó sig undir B-keppni sem halda skyldi í Noregi árið 1985. Síðla árs 1983 var Pólverjinn Bogdan Kowalcsyk ráðinn landsliðsþjálfari.