Holtavörðuheiði
Holtavörðuheiði er heiði á Norð-vesturlandi Íslands og samnefndur fjallvegur, sem fer yfir hana þvera, og nær heiðin frá Borgarfirði yfir í Hrútafjörð. Heiðin er ásamt Vatnsskarði og Öxnadalsheiði stór heiði á þjóðvegi 1 á leiðinni milli Reykjavíkur og Akureyrar. Efsti bær í Norðurárdal sunnan undir heiðinni var Fornihvammur, þar var gisti- og veitingastaður um skeið. En efsti bær að norðanverðu er Grænumýrartunga sem nú er í eyði. Hæsti punktur heiðinnar eru 407 metrar.
![](http://up.wiki.x.io/wikipedia/commons/thumb/6/69/Holtav%C3%B6r%C3%B0uhei%C3%B0i.jpg/220px-Holtav%C3%B6r%C3%B0uhei%C3%B0i.jpg)
![](http://up.wiki.x.io/wikipedia/commons/thumb/c/ce/Flag_of_Iceland.svg/40px-Flag_of_Iceland.svg.png)