Kazan
(Endurbeint frá Kasan)
Kazan (rússneska: Казань; tatarska: Казан) er höfuðborg og stærsta borg lýðveldisins Tatarstan í Rússneska sambandsríkinu. Íbúar Kazan eru 1.243.500 (2018) og er borgin sjötta fjölmennasta borg Rússlands. Kazan þykir mikilvæg Rússlandi í trúarlegu, efnahagslegu, pólitísku og vísindalegu tilliti. Hún er ein af mennta-, menningar- og íþróttamiðstöðvum Rússlands. Borgin liggur þar sem fljótin Volga og Kazanka mætast, um 715 km austur af Moskvu.
![](http://up.wiki.x.io/wikipedia/commons/thumb/5/52/KAZ_Collage_2015.png/220px-KAZ_Collage_2015.png)
Eitt helsta kennileiti borgarinnar er Kazan-kremlið sem er borgarvirki á heimsminjaskrá UNESCO.