North Cascades-þjóðgarðurinn
North Cascades-þjóðgarðurinn (enska: North Cascades National Park) er þjóðgarður í norðurhluta Fossafjalla Washingtonfylkis. Hann var stofnaður árið 1969. Bergið þar er eldra en í suðurhluta Fossafjalla og eru þar snarbrött fjöll sem roföflin hafa mótað. Um 312 jöklar eru í þjóðgarðinum sem er það mesta í bandarískum þjóðgarði utan Alaska. Cascade Pass er vinsæl gönguleið en það skarð var notað sem leið af frumbyggjum svæðisins. 75 tegundir spendýra og 200 fuglategundir lifa þar.
![](http://up.wiki.x.io/wikipedia/commons/thumb/1/1e/Map_of_North_Cascades_National_Park.png/220px-Map_of_North_Cascades_National_Park.png)
Heimild
breytaWikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist North Cascades-þjóðgarðurinn.
Fyrirmynd greinarinnar var „North Cascades National Park'“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 29. nóv. 2016.