Jáeindaskanni
(Endurbeint frá PET-skanni)
Jáeindaskanni (einnig nefnt jásjá[1] eða PET af enska heitinu positron emission tomography) er sneiðmyndatæki sem notað er til að nema efnaskiptahraða, efnaupptöku og blóðflæði á mismunandi svæðum líkamans. Það er gert með því að setja geislavirkt efni inn í líkamann og nema jáeindir sem efnið gefur frá sér.



Til að nema krabbamein er geislavirkri samsætu af flúori komið fyrir í glúkósasameind. Efnaskipti eru hröð í krabbameinsvef, hann tekur því til sín meira af geislavirka glúkósanum en annar vefur og það getur jáeindaskanninn numið.
Jáeindaskannar eru talsvert dýrari en aðrir nemar. Fyrsti jáeindaskanninn var tekinn í notkun á Íslandi árið 2018, og var það Íslensk erfðagreining sem fjármagnaði kaupin með 720 milljón króna styrk.[2]
Tilvísanir
breyta- ↑ „Hvað gerist í jáeindaskanna?“. Vísindavefurinn. Sótt 3 febrúar 2021.
- ↑ „Hefðum átt að setja upp jáeindaskanna sjálf“. RÚV. 23. september 2018. Sótt 3 febrúar 2021.
Tengill
breyta Þessi tæknigrein sem tengist líffræði er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.