Paul Pogba
Paul Labile Pogba (fæddur 15. mars 1993) er franskur atvinnumaður í knattspyrnu. Hann spilar ýmsar stöður á miðjunni og getur fært sig í vörn og sókn á miðjunni. Pogba spilaði síðast fyrir ítalska félagið Juventus og landslið Frakklands. Hann er núna án félags eftir að hafa fallið á lyfjaprófi. Hann var upphaflega dæmdur í 4 ára bann frá fótbolta fyrir að taka ólögleg lyf en því var breytt við áfrýjun í 18 mánaðar bann. Pogba má því byrja að spila í mars 2025 og þarf að finna sér félag fyrir þann tíma.
Paul Pogba | ||
![]() | ||
Upplýsingar | ||
---|---|---|
Fullt nafn | Paul Labile Pogba | |
Fæðingardagur | 15. mars 1993 | |
Fæðingarstaður | Lagny-sur-Marne, Frakkland | |
Hæð | 1,91 m | |
Leikstaða | Miðjumaður | |
Yngriflokkaferill | ||
1996–2006 2006–2007 2007-2009 2009-2011 |
Roissy-en-Brie Torcy Le Havre Manchester United | |
Meistaraflokksferill1 | ||
Ár | Lið | Leikir (mörk) |
2011-2012 | Manchester United | 3 (0) |
2012-2016 | Juventus | 124 (28) |
2016-2022 | Manchester United | 154 (29) |
2022- 2024 | Juventus | 8 (0) |
Landsliðsferill | ||
2008-2009 2010 2010-2011 2011-2012 2012-2013 2013- |
U-16 Frakkland U-17 Frakkland U-18 Frakkland U-19 Frakkland U-20 Frakkland |
17 (1) 10 (2) 6 (1) 12 (4) 13 (3) 91 (11) |
1 Leikir með meistaraflokkum og mörk |
![](http://up.wiki.x.io/wikipedia/commons/thumb/f/f9/Paul_Pogba_World_Cup_Trophy.jpg/220px-Paul_Pogba_World_Cup_Trophy.jpg)
Pogba þótti efnilegur unglingur og hélt til Manchester United árið 2011 en fékk lítil tækifæri. Hann fór til Juventus og vann 4 titla með félaginu í röð.
Árið 2016 sneri hann aftur til United fyrir metfé ( 89.3 milljón £). Pogba átti erfitt samband við Jose Mourinho árið 2018 sem setti hann á bekkinn eða úr hópnum á tímabili. Eftir að Ole Gunnar Solskjær tók við liðinu batnaði frammistaðan allmikið og hann skoraði 9 mörk og átti 5 stoðsendingar í fyrstu 10 leikjum hans sem stjóra.
Pogba fór aftur frá United á frjálsri sölu til Juventus en náði aðeins að leika 8 leiki með félaginu frá 2022 til 2024 eða þangað til hann féll á lyfjaprófi.
Foreldrar Pogba eru frá Gíneu og á hann 2 eldri bræður sem spila fyrir landslið Gíneu. Hann er múslimi.
Pogba varð heimsmeistari með Frakklandi árið 2018 og skoraði í úrslitaleiknum.
Heimild
breyta- Fyrirmynd greinarinnar var „Paul Pogba“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 18. feb. 2019.