Ráðuneyti Kristrúnar Frostadóttur

Ráðuneyti Kristrúnar Frostadóttur er núverandi ríkisstjórn Íslands og tók við völdum 21. desember 2024, eftir Alþingiskosningarnar 2024. Hún samanstendur af Samfylkingunni, Viðreisn og Flokki Fólksins. Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, er forsætisráðherra og leiðir ríkistjórnina. Ríkistjórnin tók við völdum af öðru ráðuneyti Bjarna Benediktssonar og er þetta í annað sinn á þessari öld sem það eru hrein stjórnarskipti.[1]

Hafa ríkisstjórnarflokkarnir meirihluta á Alþingi með 36 af 63 þingmönnum. Í ríkisstjórninni eru ellefu ráðherrar og fækkar um einn. Samfylkingin hefur fjóra, Viðreisn fjóra og Flokkur fólksins þrjá.[2] Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, verður forseti Alþingis.

Ráðherraskipan

breyta
Mynd Nafn Embætti Flokkur
  Kristrún Frostadóttir Forsætisráðherra Samfylkingin
  Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Utanríkisráðherra Viðreisn
  Inga Sæland Félags- og húsnæðismálaráðherra Flokkur fólksins
  Hanna Katrín Friðriksson Atvinnuvegaráðherra Viðreisn
  Logi Einarsson Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra Samfylkingin
  Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir Dómsmálaráðherra Viðreisn
  Ásthildur Lóa Þórsdóttir Mennta- og barnamálaráðherra Flokkur fólksins
  Eyjólfur Ármannsson Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra Flokkur fólksins
  Jóhann Páll Jóhannsson Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra Samfylkingin
  Alma Möller Heilbrigðisráðherra Samfylkingin
  Daði Már Kristófersson Fjármála- og efnahagsráðherra Viðreisn

Tilvísanir

breyta
  1. „Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur er tekin við völdum - RÚV.is“. RÚV. 21. desember 2021. Sótt 22. desember 2024.
  2. „Ráðuneyti Kristrúnar Frostadóttur skipað - Stjórnarráðið“. Stjórnarráðið. 21. desember 2021. Sótt 22. desember 2024.