Rósenborgarhöll
Rósenborgarhöll er lítill kastali í endurreisnarstíl í miðborg Kaupmannahafnar. Höllin var byggð af Kristjáni IV á árunum 1606 og 1607 í Konungsgarði, rétt utan við borgarmúrana. Höllin var bústaður ýmissa konunga til 1710.
![](http://up.wiki.x.io/wikipedia/commons/thumb/c/cb/Rosenborg_left.jpg/300px-Rosenborg_left.jpg)
Í dag er höllin minjasafn dönsku krúnunnar og geymir meðal annars krúnudjásnin, auk ýmissa hluta sem tengjast Danakonungum frá 16. öld til vorra daga.
![](http://up.wiki.x.io/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Rósenborgarhöll.