Samhjálp
Samhjálp er samspil milli tveggja eða fleiri lífvera sem verður báðum aðilum til gagns. Til dæmis eru í vömb jórturdýra fornbakteríur og ýmsar örverur aðrar sem sundra beðmi og hjálpa á annan hátt við meltinguna og þiggja í staðinn hlýju og skjól og tryggt framboð fæðu. Sumar bakteríur í görnum manna mynda ákveðin vítamín, sem nýtast bæði þeim og mönnunum.
![](http://up.wiki.x.io/wikipedia/commons/thumb/0/09/Impala_mutualim_with_birds_wide.jpg/220px-Impala_mutualim_with_birds_wide.jpg)
Heimild
breyta- Líffræði, kjarni fyrir framhaldsskóla eftir Örnólf Thorlacius bls. 104.
- Jón Már Halldórsson. „Hvað er samlífi, gistilífi, samhjálp og sníkjulíf dýra?“. Vísindavefurinn.