Tíbet
sjálfstjórnarhérað í Kína
Tíbet (kínverska: 西藏; rómönskun: Xīzàng Zìzhìqū) er land í Asíu eða sjálfstjórnarhérað í Kína (eftir því hvernig er á það litið). Vegna þess hve landið liggur óvenjulega hátt yfir sjávarmáli er það oft kallað þak heimsins en Tíbeska hásléttan sem er í um 4500 metra hæð nær yfir megnið af landinu. Höfuðborg Tíbet er Lasa. Í Tíbet hallast íbúarnir að tíbeskum búddisma. Samkvæmt manntali Kína frá árinu 2020 voru íbúar 3,6 milljónir.
![Kort sem sýnir legu sjálfstjórnarhéraðsins Tíbet í vesturhluta Kína.](http://up.wiki.x.io/wikipedia/commons/thumb/9/92/Tibet_in_China_%28claimed_hatched%29_%28%2Ball_claims_hatched%29.svg/220px-Tibet_in_China_%28claimed_hatched%29_%28%2Ball_claims_hatched%29.svg.png)
- Tíbet
-
Lasa
-
Yumbu Lagang
-
Sakya
-
Gyantse
-
Yak
-
Mount Everest
Heimildir
breyta- Fyrirmynd greinarinnar var „Tibet“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 19. desember 2008.
- „TÍBET KÍNA“. Sótt 19. desember 2008.