Tyrkneska
Tyrkneska (Türkçe, borið fram [tyɾktʃe]) er tyrkískt tungumál og þar af leiðandi eitt af hinum umdeildu altísku tungumálum. Hún er mest töluð í Tyrklandi en einnig af minni hópum á Kýpur, í Grikklandi og Austur-Evrópu, auk þess að vera töluð af nokkrum milljónum innflytjenda í Vestur-Evrópu. Tyrkneska er útbreiddasta tyrkíska málið og 65–73 milljónir manna hafa málið að móðurmáli. 85 af hundraði íbúa Tyrklands hafa tyrknesku að fyrsta máli en 12 kúrdísku. Eftirliggjandi 3 prósent deilast á um 30 mál sem sum hver eru milljónamál töluð í nágrannalöndunum svo sem armenska eða arabíska en mörg eru smámál á hverfanda hveli og í hættu á að leggjast af. Rætur tungumálsins má rekja til Mið-Asíu, þar sem fyrstu skrifin ná aftur um tæp 1.200 ár. Í vesturátt eru áhrifin aðallega af Ottómantyrknesku — sem er afsprengi tyrknesku tungunnar og var notuð í Ottómanstórveldinu og breiddist út samhliða því. Tyrkneska hefur verið rituð með latínuletri frá 1928 en var áður rituð með arabísku letri. Nafnorð í tyrknesku hafa sex föll. Enginn ákveðinn greinir er í málinu en ákveðni er oft sýnd með notkun þolfalls. Persónufornafn þriðju persónu greinir ekki milli kynja. Í ritmálinu táknar ufsilon venjulega joð, venjulegt sé (c) 'dj', setillu sé (ç) 'tj', setillu ess 'sj'. U táknar ú og tvípunkts ü táknar u (líkt og í þýsku). Ge með boga fyrir ofan (ğ) er yfirleitt hljóðlaust.
Tyrkneska Türkçe | ||
---|---|---|
Málsvæði | Tyrklandi, Búlgaríu, Kýpur, Grikklandi, Makedóníu, Kósovó, Rúmeníu, Aserbaídsjan og í innflytjendasamfélögum í Þýskalandi, Frakklandi, Hollandi, Austurríki, Úsbekistan, Bandaríkjunum, Belgíu og Sviss | |
Heimshluti | Tyrkland, Kýpur, Balkanskagi og Kákasusfjöll | |
Fjöldi málhafa | 75-83 milljónir | |
Sæti | 15-16 | |
Ætt | Altaískt (umdeilt) Tyrkískt | |
Opinber staða | ||
Opinbert tungumál |
Tyrkland | |
Stýrt af | Tyrknesku tungumálasamtökunum | |
Tungumálakóðar | ||
ISO 639-1 | tr
| |
ISO 639-2 | tur
| |
SIL | TUR
| |
ATH: Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode. |
Nokkrar setningar og orð
breytaTürkçe | Íslenska |
---|---|
Selam, merhaba | Halló |
İyi günler | Góðan daginn |
İyi akşamlar | Gott kvöld |
Tanıştığıma memnun oldum | Gaman að hitta þig |
Türkçe konuşuyorum | Ég tala tyrknesku |
Türkçe/İzlandaca konuşamıyorum | Ég tala ekki tyrknesku/íslensku |
Evet | Já |
Hayır | Nei |
Nasılsınız? (formlegt) | Hvað segirðu gott? |
Nasılsın? (óformlegt) | Hvað segirðu gott? |
İyiyim | Ég segi allt gott |
(Çok) Teşekkür ederim | Takk (fyrir) |
Adınız nedir? (formlegt) | Hvað heitirðu? |
Adın ne(-dir)? (óformlegt) | Hvað heitirðu? |
(Benim) adım ... | Ég heiti ... |
Hoşçakal | Bless |
Persónufornöfn í tyrknesku
breytaeintala | fleirtala | |||||
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 1 | 2 | 3 | |
nefnifall | ben | sen | o | biz | siz | onlar |
þolfall | beni | seni | onu | bizi | sizi | onları |
þágufall | bana | sana | ona | bize | size | onlara |
staðarfall | bende | sende | onda | bizde | sizde | onlarda |
sviptifall | benden | senden | ondan | bizden | sizden | onlardan |
eignarfall | benim | senin | onun | bizim | sizin | onların |