Verslunin Edinborg
Verslunin Edinborg var ein af stærri kaupmannsverslununum í Reykjavík á fyrri hluta 20. aldarinnar en þaðan var einnig gert út. Á seinni hluta 20. aldarinnar voru þar fyrst og fremst seldar vefnaðarvörur og leikföng. Verslunin var stofnuð af Ásgeiri Sigurðssyni sem var jafnframt konsúll eða sendiherra Breta. Verslunin var með útibú á Eskifirði og á Ísafirði þar sem verslunin stóð fyrir byggingu hafskipsbryggju sem varð tilefni deilna í bæjarstjórn.
![](http://up.wiki.x.io/wikipedia/commons/thumb/3/36/Verslunin_Edinborg_%C3%AD_Hafnarstr%C3%A6ti%2C_skreytt_vegna_konungskomu_-_Edinborg_store_in_Hafnarstr%C3%A6ti_2-4%2C_decorated_in_the_occasion_of_the_Danish_king%C2%B4s_visit%2C_1907_-_%283545740162%29.jpg/220px-thumbnail.jpg)
Fljótlega eftir stofnun, eða uppúr aldamótunum 1900, var hægt að fá vínber og epli í janúar í versluninni.[1] Fyrsta árið eftir stofnun RÚV árið 1930 leigði það aðstöðu hjá Edinborgarverslun við Hafnarstræti en fluttist svo um set í Landssímahúsið við Austurvöll.[2]
Heimildir
breytaTenglar
breyta- Verzlunin Edinborg, grein í Frjálsri verslun frá árinu 1941
- Verzlunin Edinborg Fimmtug, grein í Fálkanum 1945
- Völundur, Kveldúlfur, Edinborg, Lárus Lúðvíks og Silli og Valdi, grein eftir Jón G. Hauksson í DV 4. maí 1988
- Saga hússins Geymt 4 júní 2018 í Wayback Machine