Arnbjörg Sveinsdóttir
Arnbjörg Sveinsdóttir (f. 18. febrúar 1956 í Reykjavík) var þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins 2005-2009 og alþingismaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Norðausturkjördæmi 2004 - 2009. Arnbjörg átti áður sæti á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Austfjarðakjördæmi 1995 - 2003. Foreldrar hennar eru Guðrún Björnsdóttir og Sveinn Már Guðmundsson. Maður hennar er Garðar Rúnar Sigurgeirsson og eiga þau tvö börn.
Arnbjörg Sveinsdóttir (ArnbS) | |
| |
Fæðingardagur: | 18. febrúar 1956 |
---|---|
Fæðingarstaður: | Reykjavík |
Flokkur: | Sjálfstæðisflokkurinn |
Þingsetutímabil | |
1995-2003 | í Austurl. fyrir Sjálfst. ✽ |
2004-2009 | í Norðaustur fyrir Sjálfst. ✽ |
2009 | í Norðaustur fyrir Sjálfst. |
✽ = stjórnarsinni | |
Embætti | |
1999-2003 | Formaður félagsmálanefndar |
2005-2009 | Þingflokksformaður |
2006-2009 | Formaður kjörbréfanefndar |
2007-2009 | Formaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar |
Tenglar | |
Æviágrip á vef Alþingis |
Arnbjörg lauk stúdentsprófi árið 1976 og stundaði laganám við Háskóla Íslands á árunum 1980-1982. Hún sat í bæjarstjórn Seyðisfjarðar 1986-1998 og var forseti bæjarstjórnar 1994-1996. Hún sat í stjórn Samtaka sveitarfélaga á Austurlandi, formaður árin 1991-1992 og var á sama tíma formaður landshlutasamtaka sveitarfélaga.
Fyrir þingmennsku vann Arnbjörg við skrifstofustörf hjá Fiskvinnslunni hf. og Gullbergi hf. 1983-1990 og var skrifstofu- og fjármálastjóri Fiskiðjunnar Dvergasteins hf. 1990-1995.