Björn Malmquist

fréttaritari Ríkisútvarpsins í Bandaríkjunum

Björn Malmquist er fréttaritari Ríkisútvarpsins í Brussel. Hann er fæddur á Akranesi 1964 og lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum á Akranesi árið 1985. Lauk BS-prófi frá Háskóla Íslands 1992 og MA-prófi í fjölmiðlafræði frá Wayne ríkisháskólanum í Detroit, Michigan árið 1997. Hann hefur starfað sem blaðamaður á ýmsum miðlum, meðal annars sem útvarpsmaður á fréttastöð NPR í Bandaríkjunum.

Björn tók við stöðu forstöðumanns Ríkisútvarpsins á Austurlandi sumarið 2002 og gegndi því fram til maí 2005 þegar hann flutti til Bandaríkjanna. Hann hefur síðan þá starfað á RÚV sem fréttamaður, en hóf störf sem fréttaritari í Brussel snemma árs 2023.

  Þetta æviágrip er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.