Jakob Frímann Magnússon

íslenskur tónlistarmaður og Alþingismaður

Jakob Frímann Magnússon (f. 4. maí 1953 í Kaupmannahöfn) er íslenskur tónlistarmaður, tónskáld, kvikmyndagerðarmaður og alþingismaður. Hann er stofnmeðlimur hljómsveitarinnar Stuðmanna. Jakob var kjörinn á þing 2021 í Norðausturkjördæmi fyrir Flokk fólksins.

Jakob Frímann Magnússon (JFM)
Alþingismaður
frá  kjördæmi    þingflokkur
2021  Norðaustur  Flokkur fólksins
Persónulegar upplýsingar
Fæddur4. maí 1953 (1953-05-04) (71 árs)
Kaupmannahöfn, Danmörk
StjórnmálaflokkurFlokkur fólksins (frá 2021)
Íslandshreyfingin (2007)
Samfylkingin (1999-2006)
Maki1. Anna Björnsdóttir
2. Ragnhildur Gísladóttir
3. Birna Rún Gísladóttir
BörnFjórar dætur, þær eru
Erna Guðrún Jakobsdóttir,
Bryndís Jakobsdóttir,
Jarún Júlía Jakobsdóttir og
Katrín Borg Jakobsdóttir
MenntunMBA
HáskóliHáskólinn í Reykjavík
Þekktur fyrirTónlist og kvikmyndagerð
Æviágrip á vef Alþingis

Störf

breyta

Stofnaði Stúdíó Sýrland ásamt Stuðmönnum 1982. Framleiðandi og leikstjóri Brasilíufaranna (RUV) 1981, framleiðandi Með allt á hreinu 1982, framleiðandi Nickel Mountain (HBO) 1983, framleiðandi og leikstjóri Hvítra Máva 1984, framleiðandi Rocking China 1986, Í takt við tímann 2005 auk fjölda heimildarmynda, sjónvarps – og útvarpsþátta. Dómari í Ísland got Talent 2015–2016.

Menningarfulltrúi íslenska sendiráðsins í London 1991–1995 og menningarráðunautur utanríkisráðuneytisins frá 2006. Framkvæmdastjóri miðborgarmála frá 2008 og framkvæmdastjóri Miðborgarinnar okkar frá 2009. Varaþingmaður Samfylkingarinnar 2000–2006 og sat á þingi í skamman tíma 2004. Formaður FTT, Félags tónskálda og textahöfunda frá 2006, formaður STEFs, Sambands tónskálda og textahöfunda frá 2008, formaður SAMTÓNS 2010–2012, stofnaði Secret Solstice ásamt fleirum 2013, formaður stjórnar ÚTÓNs frá 2015, formaður stjórnar Iceland Airwaves frá 2015. Í stjórn BÍL, Bandalags íslenskra listamanna frá 2006.

Tengt efni

breyta

Heimildir og ítarefni

breyta

Þórunn Erlu- Valdimarsdóttir (2011). Með sumt á hreinu: Jakob Frímann Magnússon lítur um öxl. JPV útgáfa. ISBN 978-9935-11-228-6.

Tenglar

breyta
   Þetta æviágrip sem tengist Íslandi er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.