Mormónsbók
Mormónsbók er trúarrit meðal mormóna. Bókin var gefin út 1830 af Joseph Smith, stofnanda mormónatrúar.
Tilkoma bókarinnar
breytaÍ mormónstrú er því trúað að eftir að engill hafi birst Smith og sagt honum frá því hvar gulltöflur nokkrar væru faldar í jörðu hafi Smith náð í töflurnar og lesið þær með hjálp sérstakra gleraugna og þýtt texta þeirra yfir á ensku. Eftir að Smith hafi lokið þýðingunni birtist honum engillinn á ný og engillinn tók gulltöflurnar með sér. Textann gaf Smith út í Mormónsbók.