Valgerður Gunnarsdóttir
Valgerður Gunnarsdóttir (fædd á Dalvík árið 1955) er fyrrverandi alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi og skólameistari Framhaldsskólans á Laugum í Þingeyjarsveit. Valgerður sat í bæjarstjórn á Húsavík frá 1986 til 1998 og var forseti bæjarstjórnar frá 1994 til 1996. Hún var formaður Skólameistarafélags Íslands frá 2009-2013.[1][2]
Valgerður Gunnarsdóttir (ValG) | |
| |
Fæðingardagur: | 17. júlí 1955 |
---|---|
Fæðingarstaður: | Dalvík |
6. þingmaður Norðausturkjördæmis | |
Flokkur: | Sjálfstæðisflokkurinn |
Nefndir: | Fjárlaganefnd og Íslandsdeild Norðurlandaráðs. |
Þingsetutímabil | |
2013-2017 | í Norðaust. fyrir Sjálfstfl. ✽ |
✽ = stjórnarsinni | |
Embætti | |
2013-2016 | 3. varaforseti Alþingis |
2016–2017 | 4. varaforseti Alþingis |
Tenglar | |
Æviágrip á vef Alþingis |
Starfsferill og stjórnmálaþátttaka
breytaValgerður sat í bæjarstjórn á Húsavík fyrir Kvennalistann frá 1986 til 1998. Hún var forseti bæjarstjórnar frá 1994 til 1996. Á árunum 1986 til 1990 sat hún í stjórn útgerðarfélagsins Höfða á Húsavík. Hún sat í skólanefnd Framhaldsskólans á Húsavík frá 1987 til 1999 og sat í fræðslu- og menningarmálanefnd Húsavíkur frá 1994 til 1999. Valgerður hefur verið í Sjálfstæðisflokknum frá árinu 2008 og náði 2. sæti í prófkjöri flokksins í Norðausturkjördæmi í janúar 2013.
Valgerður var íslenskukennari, deildarstjóri og námsráðgjafi við Framhaldsskólann á Húsavík frá stofnun skólans árið 1987 til ársins 1999, þegar hún var skipuð skólameistari Framhaldsskólans á Laugum. Valgerður var kjörin í stjórn Skólameistarafélags Íslands árið 2000 og var formaður þess frá 2009-2013. Hún hefur verið formaður Samstarfsnefndar framhaldsskóla á Norðurlandi frá árinu 2006.
Menntun
breytaValgerður lauk landsprófi frá Gagnfræðaskóla Dalvíkur árið 1971. Hún sótti námskeið í matreiðslu fyrir matreiðslumenn á fiskiskipaflotanum við Húsmæðraskólann á Akureyri veturna 1973 og 1974. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1975 og BA prófi í íslensku og bókmenntafræði frá Háskóla Íslands árið 1982. Árið 1996 lauk hún námi í uppeldis- og kennslufræði frá Háskólanum á Akureyri.
Fjölskylda
breytaValgerður er fædd á Dalvík árið 1955. Foreldrar hennar eru Ásta Jónína Sveinbjarnardóttir og Gunnar Þór Jóhansson skipstjóri. Eiginmaður hennar er Örlygur Hnefill Jónsson lögmaður og varaþingmaður á Húsavík. Börn þeirra eru Emilía Ásta Örlygsdóttir (fædd 1977), Örlygur Hnefil Örlygsson (fæddur 1983) og Gunnar Hnefil Örlygsson (fæddur 1990). Börn Valgerðar reka hótel og ferðaþjónustu á Húsavík. Tengdafaðir Valgerðar var Jón Hnefill Aðalsteinsson (1927-2010), prófessor í þjóðfræði við Háskóla Íslands.
Tenglar
breytaTilvísanir
breyta- ↑ Valgerður náði öðru sætinu, 28. janúar 2013
- ↑ Norðausturland – kjörlendi öflugra tækifæra, 18. janúar 2013
Heimildir
breyta- Morgunblaðið: Valgerður gefur kost á sér í 2. sæti. Skoðað þann 21. janúar 2013.
- Morgunblaðið: Valgerður Gunnarsdóttir ráðin skólameistari á Laugum. Skoðað þann 21. janúar 2013.
- Íslendingur: Norðausturland – kjörlendi öflugra tækifæra. Skoðað þann 21. janúar 2013.
- Alþingi, æviágrip: Örlygur Hnefill Jónsson. Skoðað þann 21. janúar 2013.
- Morgunblaðið: Skólastarf á Laugum 80 ára. Skoðað þann 21. janúar 2013.
- Morgunblaðið: Uppbygging og útsjónarsemi. Skoðað þann 21. janúar 2013.
Fyrirrennari: Þorvaldur Vestmann Magnússon |
|
Eftirmaður: Katrín Eymundsdóttir | |||
Fyrirrennari: Hjalti Jón Sveinsson |
|
Eftirmaður: enn í embætti |