Kröflueldar
Kröflueldar voru hrina eldgosa og kvikuhlaupa sem áttu sér stað við Kröflu frá 20. desember 1975 til 18. september 1984. Á þessum tíma var verið að reisa Kröfluvirkjun. Á sama tíma og framkvæmdir voru að hefjast um mitt ár 1975 varð mikil aukning í skjálftavirkni á Kröflusvæðinu sem náði hámarki 20. desember 1975 þegar eldgos hófst við Leirhnjúk. Þetta litla hraungos var upphafið að Kröflueldum þar sem kvika streymdi inn í kvikuhólf undir Kröfluöskjunni. Þegar þrýstingur varð nógu mikill í kvikuhólfinu varð kvikuhlaup þar sem hluti kvikunnar hljóp í sprungureinar sem opnuðust. Þetta gerðist um 24 sinnum næstu níu árin og þar af rann hraun ofanjarðar níu sinnum. Á meðan á þessu stóð varð landris og landsig áberandi með tilheyrandi jarðhræringum bæði í Kröfluöskjunni og í kringum hana.[1][2] Hraunin sem upp komu í þessum gosum heita Leirhnjúkshraun og þekja 33 km².
![](http://up.wiki.x.io/wikipedia/commons/thumb/5/55/Krafla_usgs.jpg/220px-Krafla_usgs.jpg)
![](http://up.wiki.x.io/wikipedia/commons/thumb/4/45/Lava_flow_at_Krafla%2C_1984.jpg/220px-Lava_flow_at_Krafla%2C_1984.jpg)
1975-1984
breyta- Desember 1975.
- 27. apríl 1977.
- 8.-9. september 1977.
- Mars 1980.
- 10.-18.júlí 1980.
- 18.-23. október 1980.
- 30. janúar - 4. febrúar 1981.
- 18. nóvember 1981.
- 4. -18. september 1984.
(Heimild: Eldgos 1913-2004. Ari Trausti Guðmundsson og Ragnar Th. Sigurðsson. Bls 10-55)
Tilvísanir
breyta- ↑ Guðbjartur Kristófersson, Jarðfræði. (Reykjavík: Leturprent 2005).
- ↑ „Krafla - Leirhnjúkur - Gjástykki“ Geymt 13 mars 2016 í Wayback Machine. Nordic Adventure Travel.