Skjaldarmerki Króatíu
Skjaldarmerki Króatíu er opinbert skjaldarmerki Króatíu. Það er með rauðu og hvítu skákborðsmynstri á hvítum skildi með rauðum jaðri. Það á rætur sínar að rekja til 15. aldar. Yfir skjaldarmerkinu eru merki fimm sögulegra landshluta Króatíu: Illyríu, Dalmatíu, Dubrovnik, Istríu og Slavóníu, þótt þau séu nokkuð ólík sögulegum fyrirmyndum.
![](http://up.wiki.x.io/wikipedia/commons/thumb/c/c9/Coat_of_arms_of_Croatia.svg/220px-Coat_of_arms_of_Croatia.svg.png)
Skjaldarmerkið er í miðju fána Króatíu. Það var formlega skilgreint og tekið upp 21. desember 1990.