Akrahreppur (áður kallaður Blönduhlíðarhreppur) er fyrrum sveitarfélag í Skagafjarðarsýslu, austan Héraðsvatna, norðan frá Kyrfisá allt suður að Hofsjökli. Aðalatvinnuvegur er landbúnaður og er ekkert þéttbýli í sveitarfélaginu. Grunnskóli hreppsins var á Stóru-Ökrum, í félagsheimilinu Héðinsminni, frá 1949 til 2006 en í kjölfar deilna milli foreldra og kennara var hann lagður niður og síðan hefur nemendum verið ekið í skóla í Varmahlíð.[1]

Kort af Akrahrepp

Fjórar kirkjur eru í Akrahreppi, á Flugumýri, Miklabæ, Silfrastöðum og Ábæ í Austurdal en Ábæjarsókn er nú öll í eyði. Lítils háttar jarðhiti er á nokkrum stöðum í Akrahreppi og var byggð sundlaug á Víðivöllum árið 1938, sem ekki er lengur í notkun. Nú hefur hitaveita verið lögð frá Varmahlíð um mestalla Blönduhlíð.[1]

Í atkvæðagreiðslu 19. febrúar 2022 samþykktu íbúar Akrahrepps og Sveitarfélagsins Skagafjarðar sameiningu sveitarfélaganna undir nafninu Skagafjörður sem tók gildi í kjölfar sveitarstjórnakosninga 2022.[2][3]

Landafræði

breyta

Sveitarfélagið náði yfir Blönduhlíð og Norðurárdal, Kjálka og Austurdal allan nema hvað bærinn Bústaðir tilheyrði Sveitarfélaginu Skagafirði. Nokkur eyðibýli í Vallhólmi tilheyra einnig Akrahreppi þótt þau séu nú vestan Héraðsvatna, sem hafa breytt um farveg á þessum slóðum. Víðlend afréttarlönd tilheyra sveitarfélaginu, Silfrastaðaafrétt og Nýjabæjarafrétt.[1]

Akrahreppur er sögusvið margra stórviðburða Sturlungaaldarinnar, þar á meðal Örlygsstaðabardaga (fjölmennustu orrustunnar), Haugsnesbardaga (mannskæðustu orrustunnar) og Flugumýrarbrennu.[1]

Skáldið Hjálmar Jónsson bjó á ýmsum bæjum í Akrahreppi á 19. öld og er jafnan kenndur við einn þeirra, Bólu í Blönduhlíð.[4]

Hreppsnefnd

breyta

Í hreppsnefnd Akrahrepps sátu 5 fulltrúar sem kjörnir voru hlutfallskosningu á fjögurra ára fresti. Síðast var kosið í hreppsnefnd í sveitarstjórnarkosningunum 26. maí 2018.[5]

Oddvitar [6]

Heimildir

breyta
  1. 1,0 1,1 1,2 1,3 „Akrahreppur“. Skagfirðingar. Sótt 4. september 2024.
  2. Skagafjörður verður eitt sveitarfélag“, RÚV, 2022-02-20, skoðað þann 2022-04-05.
  3. Jónsdóttir, Hallgerður Kolbrún E. „Sameinað Sveitarfélag Skagafjarðar og Akrahrepps fær nafn - Vísir“. visir.is. Sótt 17. júní 2022.
  4. „Northwest Iceland“. web.archive.org. 22. júlí 2011. Afrit af upprunalegu geymt þann 22. júlí 2011. Sótt 4. september 2024.
  5. Miklabæ (3. október 2023). „Akrahreppur | Ísland - Atvinnuhættir og menning“. isat.is. Sótt 4. september 2024.
  6. Byggðasaga Skagafjarðar IV. bindi Akrahreppur, ritstjóri Hjalti Pálsson, bls 50